Entries Tagged as ‘Almennt röfl’

4. mars 2009

Lengi getur vont versnað

Ég hélt að ég hefði náð nýjum hæðum í að vera upptekin síðustu þrjá blogglausu mánuði en það virðist hafa verið misskilningur af minni hálfu. Framundan er 10 daga fundur í Utrecht í Hollandi, boð á Bessastöðum ásamt hátíðarkvöldverði á vegum vinnunnar, endalaus verkefni í skólanum, ESN skýrslur og viðburðir, styrkbeiðnir, vinna, skóli, afró og [...]

24. febrúar 2009

Ástkæru lesendur

Ég er ekki hætt að blogga. Það vill bara þannig til að ég er ekki búin að blogga í rúma tvo mánuði. Það var ekki með vilja gert né heldur vildi ég særa mína tryggu þrjá lesendur eða svo. Ég er bara búin að vera fáránlega upptekin.
Nú væri rökrétt að koma með ástæður þess hvers [...]

14. desember 2008

Tjarnargötufréttabréfið 1.tbl. 1árg.

Ég þjáist af ritstíflu. Það er ekki nóg með að ég sé komin með ógeð af skriftum eftir fáránlega ritgerðatörn í nóvember, og síðustu ritgerðina sem ég á að skila á morgun og er að reyna að berja saman í þessum töluðu orðum, heldur er ég uppurin af hugmyndum og sniðugheitum. Það er ekki vottur [...]

12. desember 2008

Nýr fídus í þessu ágæta wordpress kerfi

Betri færsla kemur fljótlega.

21. nóvember 2008

Ensk-íslensk orðabók

ex-haust-ed
l. búinn, uppurinn, tómur, tæmdur. 2. dauðuppgefinn, magnþrota, örmagna, lémagna, dasaður, máttfarinn, máttlaus.
Önnin er ekki einu sinni búin ennþá. Langar að sofa í heila öld. Eða, geta bara sofið eitthvað. Rauðsprungin augu og lífvana hár. Ekki gott lúkk.

17. nóvember 2008

Hamingjustaðurinn

Um helgina fór fram andleg hreinsun. Það er ekkert eins gott eins og góður skandall til þess að koma sér á réttan kjöl eftir langt óreiðutímabil. Eins og alkarnir verður maður að ná botninu áður en enduruppbyggingin getur hafist. Hafði leyft kreppunni, veikindi ástvina og almennum leiðindum að byrgja mér sýn á það sem skiptir [...]

9. nóvember 2008

Sunnudagar til mæðu?

Það eru allir með krabbamein eða veikir þessa dagana. Amma er hárlaus og þolir illa lyfjagjöfina sem hún er í og mér brá skelfilega að sjá hana um daginn. Við vorum þá staddar í jarðarför hjá föður konunnar hans pabba sem hafði loksins tapað baráttunni við sinn krabba. Ég vissi ekki hvort ég átti að [...]

8. nóvember 2008

Fólk er fífl

Ég skrapp í heimsókn á Suðurgötuna í kvöld og ílengdist þar í óvæntu Hugh Grant maraþoni og rauðvínsdrykkju. Sérlega huggulegt. Þegar að ég var að labba heim um þrjúleytið var ungt og frekar drukkið par að ganga Tjarnargötuna á undan mér. Allt í einu stoppa þau og virðast vera að kíta. Áður en ég veit [...]

3. nóvember 2008

Pælingar

Helgin kom og fór. Fór þrisvar út að borða, tvisvar var það mjög gott og í eitt skiptið lala. Alltaf sat ég þó í góðum félagsskap sem skiptir jafnmiklu ef ekki meira máli en maturinn. Sérstaklega þegar að reikningurinn er borgaður af öðrum.
Ég er að renna á rassinn með ritgerð sem ég á að skila [...]

30. október 2008

Gáfumannarit

Ég komst yfir eintak af nýjasta Economist í dag þar sem að segir meðal annars í grein um vandamálin sem blasa við hagkerfum Austur-Evrópu: “WILL an ex-communist country be the next Iceland?”.  Ég veit ekki af hverju en mér finnst þetta afskaplega súrrealísk staða sem við erum búin að koma okkur í, hvort sem það [...]