Eins mikið og ég kann að meta íslenska ríkisfangið mitt þá finnst mér stundum óttalega erfitt að vera fædd og uppalin á þessu skeri. Þegar ég var yngri fóru mamma og pabbi stundum með mig á eðalbúllur eins og Tommaborgara og Svörtu pönnuna en þar fékk maður hamborgara, franskar og bleika og kók með. Pizza [...]
Entries Tagged as ‘Ferðalög’
20. september 2008
Þakklæti
Stundum gengur allt á afturfótunum hjá manni. Símum er stolið. Veski týnast. Tölvur fá vírusa og óskipulagðar flugferðir af hjólum valda manni sársauka. Stundum gerist þetta allt á nokkrum dögum og maður getur ekki annað en að veltast um í sjálfsvorkunn og eymd. Þá er gott að setja hlutina í samhengi. Muna eftir félögum sem [...]
9. september 2008
Margt skrýtið í kýrhausnum
Það er svo merkilegt hvað manni finnst merkilegt. Til dæmis fannst mér afar merkilegt þegar að ég flaug með Etihad Airwaves frá London til Abu Dhabi að kafli úr Kóraninum var lesinn upphátt yfir alla vélina áður en hún fór í loftið. Það er í sjálfu sér ekkert svo merkilegt þannig en þetta fór fram [...]
27. ágúst 2008
Kanada
Ég er núna í Toronto eftir að hafa eytt yndislegum tíma í Montréal með nýjum vinum og gömlum. Ég sit í Lobby-inu á rándýra hótelinu sem ég er að gista á (frítt auðvitað, myndi ALDREI borga fyrir þetta sjálf) og fylgist með töskuberum burðast með annara manna farangur á gylltum vögnum sem renna mjúklega eftir [...]
21. ágúst 2008
Wolverhampton
Á kaffihúsi í Wolverhampton situr skeggjuð kona og ræðir heimsins vanda við nærstadda. Ófrítt fólk með skítugt hár sem situr á garðstólum og drekkur vont kaffi. Miðaldra maður með flöskubotnsgleraugu og fitugar hárlufsur greiddar yfir skallann treður í sig ristuðu brauði löðrandi í smjörlíki og bakaðar baunir spítast út á milli tannanna á honum. Fyrir [...]
7. ágúst 2008
Frá London til Montreal
Í morgun vaknaði ég enn hálfpirruð eftir að hafa talað við spænska kjánann sem ég var einu sinni skotin í og er að reyna að gleyma á msn í gærkvöldi. Við ætlum að hittast í London í næstu viku og fara saman á tónlistarhátíð þar sem meirihlutin af böndunum gætu flokkast sem árás á saklaus [...]
27. júní 2008
Grænland
Ég var búin að gleyma hvað Grænland er fallegt land. Reyndar er landslagið á austurströndinni á köflum víst mjög líkt Íslandi og fékk ég á tilfinninguna að ég væri einhvers staðar uppi á fjöllum fyrir norðan þegar að ég gekk út úr flugstöðinni í Kuluskuk. Húsin, ísjakarnir og fólkið sem talar þetta skemmtilega tungumál frá [...]
23. júní 2008
Helgin
Rútan erfiðaði yfir grjót og ár á leiðinni út úr Mörkinni sem gerði það að verkum að ómögulegt reyndist að lesa staf þangað til komið var á malbik. Í staðinn hlustaði ég á elskhugann ástkæra en skemmtilegir tölvuvæddir tónar Hot Chip voru í hrópandi mótsögn við tilkomumikið landslagið. Ég er ástfangin af Þórsmörk og litla [...]