Entries Tagged as ‘Hitt kynið’

24. febrúar 2009

Ástkæru lesendur

Ég er ekki hætt að blogga. Það vill bara þannig til að ég er ekki búin að blogga í rúma tvo mánuði. Það var ekki með vilja gert né heldur vildi ég særa mína tryggu þrjá lesendur eða svo. Ég er bara búin að vera fáránlega upptekin.
Nú væri rökrétt að koma með ástæður þess hvers [...]

14. desember 2008

Tjarnargötufréttabréfið 1.tbl. 1árg.

Ég þjáist af ritstíflu. Það er ekki nóg með að ég sé komin með ógeð af skriftum eftir fáránlega ritgerðatörn í nóvember, og síðustu ritgerðina sem ég á að skila á morgun og er að reyna að berja saman í þessum töluðu orðum, heldur er ég uppurin af hugmyndum og sniðugheitum. Það er ekki vottur [...]

27. október 2008

Búið spil

Tveggja vikna mini sambandi mínu við ástralska barnið er senn að ljúka. Hann flýgur til Berlín á morgun og ég býst ekkert sérstaklega við að sjá hann aftur. Eins fáránlegt og það kann að hljóma þá verður skrýtið að sofa aftur ein í rúminu mínu og hafa ekki einhvern til að tala við allan sólarhringinn. [...]

21. október 2008

Ástæður fyrir fjarveru

1) Airwaves. Fullt að gerast, ekki mikið tóm til þess að vera að skrifa einhverjar epískar bloggfærslur.
2) Skólinn. Alls kyns verkefni að dynja yfir. Dauði og djöfull.
3) Gaur. Ég held ég sé skotin í strák. Ég held hann sé líka skotinn í mér. Veit það samt ekki alveg. Skiptir ekki öllu máli því hann býr [...]

7. september 2008

iPod örfærsla: Nynemaferd

Ekki byrjar thad vel. Alvarlega thenkjandi háskólastúdínan sem ekki les Perez Hilton drakk ca. 7 bjórum of mikid í nynemaferdinni, kyssti eitthvad barn thjakad af samviskubiti yfir ad vera halda framhjá mögulegri framtídarkærustu og gerdi svo allt vitlaust á Hressó med thví ad hafa of margar skodanir. Ég ætti ad hafa áhyggjur ordspori mínu og [...]

10. ágúst 2008

Mowgli

Spænskættaði Fransmaðurinn frá Madrid er orðinn að hálfgerðu húsgagni á Tjarnargötunni. Hann kom og fór og kom aftur en nú er stefnan tekin á að hann yfirgefi borgina á ný í fyrramálið. Eins og áður hafa tveir dagar orðið að fjórum og er hann síðasti sófasörfari sumarsins. Að honum ólöstuðum þá bara höndla ég ekki [...]

7. ágúst 2008

Frá London til Montreal

Í morgun vaknaði ég enn hálfpirruð eftir að hafa talað við spænska kjánann sem ég var einu sinni skotin í og er að reyna að gleyma á msn í gærkvöldi. Við ætlum að hittast í London í næstu viku og fara saman á tónlistarhátíð þar sem meirihlutin af böndunum gætu flokkast sem árás á saklaus [...]

7. júlí 2008

Unglingaveiki

Í hjarta mér er ég 17 ára unglingur. Ég dett í það og verð yfirleitt uppvísa að einhvers konar skandal í kjölfarið. Fólki kemur á óvart hversu gömul ég er þegar að ég uppljóstra um aldur minn og biður mig um að nota rakakrem og ekki byrja að reykja til að viðhalda barnslegu andlitinu. Sjálf [...]

1. júlí 2008

Af hjónaböndum og lottóspili

Ég er með margar og ákveðnar skoðanir á samskiptum kynjanna. Ég trúi ekki á ást við fyrstu sýn eða sálufélaga og tel að færa megi fyrir því góð rök að manninum sé ekki eðlislægt að finna sér maka fyrir lífstíð. Ég trúi heldur á hormóna, á það að vera á réttum stað á réttum tíma [...]

24. júní 2008

Hárraunir

Í kvöld endurnýjaði ég kynnin við gamlan fjanda þegar ég dró fram háreyðingagræjuna Tætarann. Nafnið Tætarinn lætur þetta pastellitaða plast drasl hljóma eins og eitthvað tryllitæki, sem það er ekki, en það er réttnefni þar sem tækið tætir hárin af löppunum á manni upp með rótum. Þetta á að virka jafn vel og vax sem [...]